Námskrá Leikskóla Seltjarnarness
Í framhaldi af setningu nýrra laga árið 2008 um leikskóla (nr. 90/2008), grunnskóla (nr. 91/2008) og framhaldsskóla (nr. 92/2008) hefur verið unnið að innleiðingu þeirrar menntastefnu sem þar er mörkuð. Undirstöðuatriði í þeirri vinnu er gerð aðalnámskrár fyrir skólastigin þrjú.
Aðalnámskrá er rammi um skólastarfið á þessum skólastigum og leiðsögn um tilgang þess og markmið. Hún birtir heildarsýn um menntun og útfærir nánar þá menntastefnu sem felst í lögunum. Aðalnámskrá er ætluð stjórnendum, skóla, kennurum og öðru starfsfólki í skólakerfinu. Einnig veitir hún nemendum, foreldrum þeirra, opinberum stofnunum, félagasamtökum, aðilum atvinnulífsins og almenningi upplýsingar um tilgang og starfsemi skóla.
Lög gera ráð fyrir að sveitarfélög sem rekstaraðilar skóla birti skólastefnu sína fyrir leik- og grunnskóla. Skólum á öllum skólastigum. Námskráin er samstarfsverkefni allra sem í skólanum starfa og endurspeglar helstu áherslur og leiðir sem ákveðið hefur verið að fara í samskiptum við börn, starfsfólk, foreldra / forráðamenn og nærsamfélagið