Gott að vita
  Gott að vita
Hagnýtar upplýsingar
- Þegar barnið byrjar í leikskólanum er gerður samningur um dvalartíma sem ætlast er til að foreldrar virði.
 - Boðið er upp á morgunverð frá klukkan 8:00 og 8:45.
 - Faglegt starf hefst stundvíslega klukkan 9:00. Mikilvægt er að börnin séu mætt fyrir þann tíma.
 - Öll börn í Mánabrekku og Holti þurfa að koma með sæng/teppi og kodda í leikskólann.
 - Börn á yngri deildum (Mýri, Nesi og Holti) koma með sæng (í stærð 70x100) og börn á eldri deildum (Skála og Odda) koma með teppi. Annan hvern föstudag er allt tekið heim og þvegið.
 - Á sólardögum þarf að bera sólarvörn á börnin áður en þau koma í leikskólann.
 - Foreldrar koma sjálfir með krem fyrir bleyjubörn
 - Mörgum börnum finnst gott að koma með lítinn bangsa eða mjúkt dýr til að hafa hjá sér í hvíldinni.
 
Afmæli:   
- Afmælisdagur barnsins er alltaf sérstakur. Þennan dag fær barnið afmæliskórónu, afmælissöngurinn sunginn, barnið fær sérstakan  afmælisdisk og glas í hádeginu og er á ýmsan hátt stjarna dagsins.                
 
Fatnaður:
- Í leikskólanum er komið með öll útiföt og viðeigandi skófatnað í byrjun vikunnar. Mikilvægt er að börnin séu með hlýjan  kuldagalla, pollagalla og vindþolinn föt  fyrir útiveru. Mörgum finnst gott að vera með inniskó.
 - Vinsamlegast skiljið fingravettlinga eftir heima. Ef fatnaður er skítugur eftir daginn þarf að taka hann heim og þvo.
 - Nauðsynlegt er að merkja allan fatnað vel.
 - Foreldrar sjá til þess að alltaf séu næg aukaföt í skólanum ( í þar til gerðum boxum/pokum í fatahólfinu )
 - Foreldrar koma með bleiur fyrir börnin sín og fylla á eftir þörfum.   
 - Leikskólinn er töskulaus. Það þýðir að töskur og stórir pokar eru teknir heim.
 
Leikföng:
- Í leikskólanum er nóg af leikföngum  og því æskilegt að börnin komi ekki með leikföng að heiman. Þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir árekstra í barnahópnum.
 
Veikindi:
- Vinsamlegast látið vita ef barnið er veikt. Hægt er að hringja eða nota Mentor til að skrá veikindi.
 - Mikilvægt er að barnið  komi ekki aftur í leikskólann eftir veikindi fyrr en það er fært um að taka fullan þátt í daglegu starfi leikskólans, bæði úti og inni.
 
Annað:
- Foreldrar taka fullan þátt í aðlögun barnsins og óskum við eftir að reglum skólans varðandi notkun síma í starfi með börnum sé fylgt.
 
