Dagskipulag
Dagskipulag Leikskóla Seltjarnarnes
Dagskipulagi er ætlað að vera rammi utan um leikskólastarfið þar sem ríkir jafnvægi frjálsra og skipulagðra stunda, inniveru og útiveru. Dagskipulagið er ætíð sniðið að þörfum barna, þroska þeirra og samsetningu barnahópsins svo og aðstæðum og öðrum ytri skilyrðum. Skipulag og ákveðnar tímasetningar dagsins gefa starfinu festu og öryggi fyrir börn, starfsfólk og foreldra en er þó sveigjanlegt og veitir svigrúm til þess að bregða út af þegar þörf er á.
kl. 07:45 | Leikskólinn opnaður. Tekið er á móti börnunum í Ási og Nesi/Tjörn |
kl. 08:00-09:00 | Morgunmatur - rólegir leikir |
kl 09:10- 09:30 | Samvera; söngur,sögur, umræður, "veðurfræðingur". |
kl. 09:30-11:15 | Hópastarf - ávaxtastund Tónlist, myndlist, hreyfing í sal, útivist, vettvangsferðir, val, skipulagðir og frjálsir leikir |
kl. 11:30 | Hádegisverður yngri börn |
kl. 12:00 | Hádegisverður eldri börn |
kl 12:00-14:00 | Svefntími yngri barna |
kl.12:00-13:00 | Hvíld/sögustund |
kl.13:00-15:00 | Leikstund/útivera |
kl. 15:00-15:30 | Miðdegishressing |
kl. 15:30-16:30 | Leikstund/útivera |
kl. 16.30 | Safnast saman í lok dags á Odda/Ási |
kl. 16.30 | Leikskólinn lokar |